AND

Saturday, April 17, 2010

Fötin afhent á mán 19. apríl!

Á mánudaginn milli kl. 18:00 og 21:00 á Ásvöllum ætlum við að afhenda fótboltabúninga, heilgalla, peysur og vindjakka. Körfuboltabúningarnir verða líklega afhentir á þriðjudaginn (nánar um það síðar).

Fyrirkomulagið mun verða þannig að þið komið og náið í það sem þið pöntuðuð, þið skoðið búninginn og ákveðið hvort þið viljið setja nafn viðkomandi á hann eða ekki. Nafnið kostar 600 krónur.

Síðan skráið þið á þar til gert blað hvaða númer á að fara á búninginn og nafn (val hvers og eins) - munið að gera það mjög skilmerkilega – setjið í pokann með búningnum og við söfnum búningunum saman og förum aftur með í Margt smátt sem klárar merkingarnar. Búningarnir verður síðan afhentir á föstudaginn með fullri merkingu.
Ástæðan fyrir þessu fyrirkomulagi er að Margt smátt ræður ekki við að fá til sín 600 foreldra með einn búning hver sem allir koma á sitthvorum tímanum.

No comments:

Post a Comment

Eldri fréttir