„Nú hafa Haukar samið við Hummel og Intersport næst þrjú árin.
Allur haukafatnaður mun verða til sölu hjá Intersport í Lindum frá og með miðri næstu viku.
Við verðum með söludaga þriðjudaginn 9.apríl og miðvikudaginn 10.apríl, þar munum við selja nýjan knattspyrnubúning ásamt öðrum vörum.
Sú nýjung verður tekin upp að selja svokallaða Haukapeysu (rennd hettupeysa) sem er ætluð fyrir alla þ.e. iðkendur, fjölskylduna, stuðningsmenn og alla þá sem vilja.
Endilega takið annanhvorn daginn frá og komið og kannið úrvalið hjá okkur.“
No comments:
Post a Comment