Kæru foreldrar
Minni á að þann 1. febrúar opnar á ný fyrir umsóknir um íþrótta- og tómstundastyrki.
Frestur til að staðfesta þátttöku vegna vorannar 2010 (jan. – maí) er til og með 15. febrúar. Gáttin er aðeins opin einu sinni á þessu tímabili.
Með staðfestingu í gegnum Íbúagáttina samþykkir forráðamaður barns að Hafnarfjarðarbær greiði viðkomandi félagi niðurgreiðsluna vegna þátttöku barnsins í námskeiði á vegum félagsins.
Nánari upplýsingar um íþrótta- og tómstundastyrkina eru í Íbúagáttinni,www.hafnarfjordur.is , en einnig hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar í síma 585-5500 og hjá Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar í síma 555-2300.
Guðbjörg Norðfjörð, íþróttastjóri Hauka.
No comments:
Post a Comment